Eyvindarhóll

Google Maps
Ornefni Atlas Eyvindarholl 3F98

Eyvindarhóll

Eyvindarhóll er áberandi hóll í hrauninu fyrir norðaustan Miðhóla, hér um bil miðja vegu á milli eyðibýlanna Skógarkots og Hrauntúns. Hann stendur þétt upp við Nýju-Hrauntúnsgötu og er auðkenndur af fuglaþúfu sem hvílir á toppi hans. Hóllinn er jafnframt klofinn í þrennt af djúpum, botngrónum sprungum.

Skógarnytjar á milli Þingvallabæjar og Skógarkots voru ákvörðuð við Eyvindarhól áður fyrr. Mörkin voru þá dregin frá Jafningjum yfir í Eyvindarhól og þaðan norður í Markavörðu.

Eyvindarhóll

Horft til norðurs á Eyvindarhól frá Nýju-Hrauntúnsgötu.

Eyvindarhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Norður af Jafningjum er stór hæð, og norður af henni Miðhólar (170), smá-hólar nokkrir; á milli þeirra og Markavörðu er all-einkennilegur hóll, klofinn mjög og grasi gróinn að neðan; hann heitir Eyvindarhóll (171). Hjá honum liggur hin nýja gata milli Hrauntúns og Skógarkots.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„65. Er vitað um tilefni nafnsins Eyvindarhóll? Ókunnugt um tilefni.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985:

„Allar framanskráðar jarðir [í landi Þingvalla] áttu sameiginlegt beitiland innan þessara landamerkja, þótt hefð og venja skapaðist um notkun landsins. Aftur á móti var skógarhögg afmarkað fyrir hverja jörð. Þingvallastaður átti skógarhögg allt austur að Skógarkoti og að norðan var miðað við línuna frá Hellholtsvörðu, (sem er við Göngustíginn milli Skógarkots og Þingvalla) í Jafni[n]gsvörðu, þaðan í Eyvindarhól. Hornmark á milli framangreindra bæja og Hrauntúns, var í Markavörðu. Þaðan var línan austan Þrívarðaskógar í Bolaklif. Allan skóg í Ármannsfelli hafði Þingvallastaður einn til umráða og seldi þar leyfi til skógarhöggs, bæði til kolagerðar og raftviðar á meðan hann var þar til.“

Pétur merkti Eyvindarhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Eyvindarhóll

Staðið í sprungunni ofan í hólnum.

Heimildir

Tengd örnefni