Markavarða

Google Maps
Ornefni Atlas Markavarda E30f

Markavarða

Markavarða er varða í hrauninu á milli eyðihjáleignanna Skógarkots og Hrauntúns. Hún stendur á hól skammt fyrir austan Nýju-Hrauntúnsgötu og sést vel þaðan; hún er haganlega hlaðin og afar heilleg, strýtumynduð í lögun og um einn og hálfur metri á hæð. 

Varðan markaði skógarnytjar á milli Þingvalla, Skógarkots og Hrauntúns áður fyrr. Mörkin á milli Þingvalla og Skógarkots voru dregin frá Eyvindarhóli yfir í Markavörðu, og frá vörðunni voru mörkin á milli Þingvalla og Hrauntúns dregin í gegnum Þrívarðnaskóg inn að Bolaklifi. 

Markavarða

Markavarða úr norðri. Þingvallavatn, Hengilssvæðið og Almannagjá í bakgrunni.

Markavarða í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Frá Efstu-brún er mishæðalítið, gras- og skógar-lautir með smá-hólum, heim að Hrauntúni. Stutt vestur af Efstu-brún er vörðubrot lítið, sem heitir Markavarða (169). Í Þingvallalandi var engum afnotum skipt milli hjáleignanna, nema skógarhöggi.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„Markvarða? Sést fyrir þessum vörðum enn, þ.e. Þorsteinsvörðu og Markvörðu? Hvaða lönd afmarkaði Markvarða? Markvarða var merki á skógarnytjum milli Hrauntúns og Skógarkots. Varðan sést vel c.a. 300 m suðvestur frá túninu í Hrauntúni.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985:

„Allar framanskráðar jarðir [í landi Þingvalla] áttu sameiginlegt beitiland innan þessara landamerkja, þótt hefð og venja skapaðist um notkun landsins. Aftur á móti var skógarhögg afmarkað fyrir hverja jörð. Þingvallastaður átti skógarhögg allt austur að Skógarkoti og að norðan var miðað við línuna frá Hellholtsvörðu, (sem er við Göngustíginn milli Skógarkots og Þingvalla) í Jafni[n]gsvörðu, þaðan í Eyvindarhól. Hornmark á milli framangreindra bæja og Hrauntúns, var í Markavörðu. Þaðan var línan austan Þrívarðaskógar í Bolaklif. Allan skóg í Ármannsfelli hafði Þingvallastaður einn til umráða og seldi þar leyfi til skógarhöggs, bæði til kolagerðar og raftviðar á meðan hann var þar til.“

Pétur merkti Markavörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar tæplega 70 metrum norðan við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni