Jafningjar
Jafningjar eru vörðubrot á þremur smáhólum norðan við eyðibýlið Skógarkot. Þeir eru merktir á kort fyrir norðaustan Réttarholt, skammt sunnan við Stórhóla og upp við Nýju-Hrauntúnsgötu að vestanverðu; Jafningjahæð er þá merkt austan götu. Taka verður staðsetningu Jafningja með ákveðnum fyrirvara þar sem vörðubrotin hafa ekki verið staðsett nákvæmlega.
Jafningjar hafa ákvarðað skógarnytjar á milli Þingvallabæjar og Skógarkots; mörkin voru dregin frá vörðu á Helluholti norður að Jafningjum (Jafningsvörðu) og þaðan inn að Eyvindarhóli og Markavörðu.
Jafningjar í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Rjett fyrir norðvestan túnið í Skógarkoti er brekkumynd vestan-í hæð, sem heitir Rjettarhæð (152); skammt norðvestur þaðan eru vörðubrot á þremur smá-hólum; þær heita Jafningjar (153). Austan við þær liggur hin nýja gata upp að Hrauntúni, sem rudd var um 1910 til 1912; áður var gatan upp svo-nefndar Brúnir (154). Austur frá Jafningjum, skammt norðaustur frá túninu, heita Djúpudalir (155); eru þeir tveir. [...] Norður af Jafningjum er stór hæð, og norður af henni Miðhólar (170) [...]“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„59. Er vitað um tilgang Jafningja? Vegvísar að Hrauntúni? Sést fyrir þeim enn? Nei.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985:
„Allar framanskráðar jarðir [í landamerkjaskrá Þingvallastaðar frá 1886] áttu sameiginlegt beitiland innan þessara landamerkja, þótt hefð og venja skapaðist um notkun landsins. Aftur á móti var skógarhögg afmarkað fyrir hverja jörð. Þingvallastaður átti skógarhögg allt austur að Skógarkoti og að norðan var miðað við línuna frá Hellholtsvörðu, (sem er við Göngustíginn milli Skógarkots og Þingvalla) í Jafni[n]gsvörðu, þaðan í Eyvindarhól. Hornmark á milli framangreindra bæja og Hrauntúns, var í Markavörðu. Þaðan var línan austan Þrívarðaskógar í Bolaklif. Allan skóg í Ármannsfelli hafði Þingvallastaður einn til umráða og seldi þar leyfi til skógarhöggs, bæði til kolagerðar og raftviðar á meðan hann var þar til.“
Pétur merkti Jafningja inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Jafningjahæð merkti hann 100 metrum suðaustar.