Réttarholt
Réttarholt (eða Réttarhæð) er lítil hæð í hrauninu skammt fyrir norðvestan eyðibýlið Skógarkot. Þar fyrir sunnan eru Jónsvörðubalar og á milli þeirra og Réttarholts er lítt gróin flöt þar sem Krókhólagata liggur inn að Leirum. Getið er um örnefnið Kattardal við Réttarhæð.
Engar heimildir eru til um réttir við Réttarhæð; nafngjöfin gæti tengst Réttarhól skammt suðaustar, ofan við túnið í Skógarkoti, en austan við hann er tvískipt fjárrétt.
Réttarholt í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Rjett fyrir norðvestan túnið í Skógarkoti er brekkumynd vestan-í hæð, sem heitir Rjettarhæð (152); skammt norðvestur þaðan eru vörðubrot á þremur smá-hólum; þær heita Jafningjar (153). Austan við þær liggur hin nýja gata upp að Hrauntúni, sem rudd var um 1910 til 1912; áður var gatan upp svo-nefndar Brúnir (154).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti örnefnið (ritháttur: Réttarholt) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar á flötunum vestan við núverandi staðsetningu (64.26426,-21.0752).