Kattardalur
Kattardalur er örnefni við Réttarholt, skammt fyrir norðvestan eyðibýlið Skógarkot og ofan við Krókhólagötu.
Nafnorðið „dalur“ í Þingvallamáli var iðulega notað yfir djúpar lautir eða jarðföll í hrauninu, og má því álykta að Kattardalur sé annaðhvort ein af smálautunum sunnan undir Réttarholti eða jarðfall nokkuð ofan á því. Ekkert er vitað um afdrif kattarins – eða kattanna – sem dalurinn er kenndur við.
Kattardalur í frumheimildum
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Kattardal inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar á flötunum suðvestan við núverandi staðsetningu (64.26491,-21.0760).