Jafningjahæð
Jafningjahæð er hæð í Þingvallahrauni norðan við eyðibýlið Skógarkot og upp við Nýju-Hrauntúnsgötu að austanverðu. Nafnið er dregið af Jafningjum, sem eru vörðubrot á þremur smáhólum og eru merktir inn á kort tæpum 100 metrum norðvestar. Þar sem ákveðin óvissa ríkir um nákvæma staðsetningu Jafningja verður einnig að taka staðsetningu Jafningjahæðar með fyrirvara.
Jafningjahæð í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Norður af Jafningjum er stór hæð, og norður af henni Miðhólar (170), smá-hólar nokkrir; á milli þeirra og Markavörðu er all-einkennilegur hóll, klofinn mjög og grasi gróinn að neðan; hann heitir Eyvindarhóll (171). Hjá honum liggur hin nýja gata milli Hrauntúns og Skógarkots.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Jafningjahæð inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Jafningja merkti hann 100 metrum norðvestar.