Miðhólar

Google Maps
Ornefni Atlas Midholar 12A2

Miðhólar

Miðhólar er hólaþyrping í hrauninu á milli Krókhóla og Eyvindarhóls, skammt norður af Stórhólum og Jafningjum. Þeir standa á lágri, skógi vaxinni hæð sem snýr hér um bil frá norðri til suðurs og eru þeir margir hverjir sprungnir á toppnum. Syðsti hóllinn er sveigður í laginu og myndar litla hvilft.

Austan við Miðhóla er önnur skógarhæð og á milli hennar og hólanna er mosaflesja. Um hana liggur svokölluð Miðhólagata á milli Skógarkots og Leira. Miðhólar standa upp við miðja leið og er mið tekið á þá þegar hún er gengin.

Miðhólar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Norður af Jafningjum er stór hæð, og norður af henni Miðhólar (170), smá-hólar nokkrir; á milli þeirra og Markavörðu er all-einkennilegur hóll, klofinn mjög og grasi gróinn að neðan; hann heitir Eyvindarhóll (171). Hjá honum liggur hin nýja gata milli Hrauntúns og Skógarkots.“

„Frá Markavörðu, fyrir norðan Eyvindarhól, gengur lægð talsverð til vesturs; sunnan-við lægðina er óglögg skógarrönd niður að Miðhólum, en norðan-við hana eru hæðir, vaxnar þjettum skógi og grasi, svo að varla sjezt á stein; þær heita Kolgrafarhólshæðir (172) [...]

„Mitt á milli [Krókhóla] og Eyvindarhóls (276) eru Miðhólar (277) norðan-í skógarröndinni.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Miðhóla inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni