Efstabrún

Google Maps
Ornefni Atlas Efstabrun 8403

Efstabrún

Efstabrún er nafn á efsta og innsta hluta Brúna, skammt fyrir sunnan eyðibýlið Hrauntún. Frá býlinu liggur Hrauntúnsgata fram eftir Brúnum, og við Efstubrún er þar varða við götuna sem gæti hafa kallast Brúnavarða. Frá vörðunni sést fyrst niður að Þingvallavatni, þegar gatan er gengin til suðurs, en þegar hún er gengin til norðurs sést þar fyrst heim til Hrauntúns.

Efstabrún í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Þaðan frá Djúpudölum, hækkar hraunið norður-eftir, og er það kallað einu nafni Brúnir (158). Er fyrst Neðsta-brún (159); austast á henni er Smalavarða (160); er það dálítil grjóthrúga, norður og upp frá Strýtuhólum (161); brúnin er einnig kölluð Smalavörðubrún (162). Vestur frá henni, norður frá Djúpudölum, eru hólar nokkrir, er heita Hrútaklettar (163). Dálítið ofar en Neðsta-brún er Mið-brún (164), þá Efsta-brún (165). Þar sjezt fyrst heim að Hrauntúni, þegar þessi gamla gata er farin. Austur af Miðbrún eru Stórhólar (166) tveir [...].“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„73-74. Hvar er Brúnavarða? Sést hún enn? Tilgangur? Gott væri að fá nánari lýsingu og staðsetningu á Sandskeiðum? Brúnavarða er á efstu brún á leið að Hrauntúni, frá Skógarkoti. Þaðan mun fyrst sjást til bæjarins. Sandskeið er árunnið svæði, í suður frá Sleðás, neðst þar í gegn, liggur forn gata niður Þrívarðnaskóg og austan við Leiragjá niður á Þingvöll um Sandhóla.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Efstubrún inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni