Miðbrún
Miðbrún er miðhluti Brúna, sem eru hraunbreiður fyrir sunnan Hrauntún. Þar eru aflangir hólahryggir og mosaflatir skreyttar kerjum og jarðföllum. Austan við Miðbrún eru Stórhólar tveir, en um hana vestanverða liggur Hrauntúnsgata á milli Hrauntúns og Skógarkots.
Miðbrún í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Þaðan frá Djúpudölum, hækkar hraunið norður-eftir, og er það kallað einu nafni Brúnir (158). Er fyrst Neðsta-brún (159); austast á henni er Smalavarða (160); er það dálítil grjóthrúga, norður og upp frá Strýtuhólum (161); brúnin er einnig kölluð Smalavörðubrún (162). Vestur frá henni, norður frá Djúpudölum, eru hólar nokkrir, er heita Hrútaklettar (163). Dálítið ofar en Neðsta-brún er Mið-brún (164), þá Efsta-brún (165). Þar sjezt fyrst heim að Hrauntúni, þegar þessi gamla gata er farin. Austur af Miðbrún eru Stórhólar (166) tveir [...].“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Miðbrún inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.