Stórhólar
Stórhólar eru tveir sprungnir hólar fyrir austan Miðbrún og Neðstubrún. Hólarnir snúa báðir frá norðri til suðurs og um 30 metrar eru á milli þeirra. Austan þeirra eru mosavaxnir hraunbalar, en sunnan þeirra er Magnúsarklettsskógur.
Stórhóla má finna á tveimur öðrum stöðum í Þingvallahrauni: annars vegar fyrir norðan Skógarkot og hins vegar fyrir austan Hrauntún.
Stórhólar í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Austur af Miðbrún eru Stórhólar (166) tveir, þar sem hækkar hraunið til norðausturs frá Mosalág, þar til nokkuð fyrir norðan Músarhóla og upp undir Tvívörður (167).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Stórhóla inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Hnitið er mitt á milli hólanna.