Hrútaklettar
Hrútaklettar eru smáhólar vestan við Neðstubrún og Hrauntúnsgötu. Næst götunni er mosagróinn hraunbali með jarðfalli norðan í, en skammt norðvestan hans eru nokkrir klofnir hraunhólar.
Annað sambærilegt örnefni, Hrútaklettur, er að finna í landi Arnarfells.
Hrútaklettar í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Þaðan frá Djúpudölum, hækkar hraunið norður-eftir, og er það kallað einu nafni Brúnir (158). Er fyrst Neðsta-brún (159); austast á henni er Smalavarða (160); er það dálítil grjóthrúga, norður og upp frá Strýtuhólum (161); brúnin er einnig kölluð Smalavörðubrún (162). Vestur frá henni, norður frá Djúpudölum, eru hólar nokkrir, er heita Hrútaklettar (163).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„63. Hvernig eru Hrútaklettar? Tilefni nafnsins? Hrútaklettar eru skammt fyrir ofan Djúpudali. Er smala einkenni.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Hrútakletta inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.