Gráavarða
Gráavarða er vörðubrot í hrauninu fyrir norðan Skógarkot. Samkvæmt örnefnalýsingu á hún að standa á hól einhvers staðar á milli Djúpudala og Skyggnis. Ekki hefur tekist að staðsetja Gráuvörðu með óyggjandi hætti, en vel má vera að leifar hennar séu austan í hinum grámosaklædda Rjúphól sem þar stendur upp við Hrauntúnsgötu. Þar má greina litla grjóthrúgu.
Aðra vörðu með sama nafni er að finna í skóginum norðvestan Hrauntúns.
Gráavarða í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Austur frá Jafningjum, skammt norðaustur frá túninu, heita Djúpudalir (155); eru þeir tveir. Þar austan-við er hin gamla Hrauntúnsgata (156); á milli Djúpudala og Skygnis er hóll með vörðubroti, sem heitir Gráa-varða (157). Þaðan frá Djúpudölum, hækkar hraunið norður-eftir, og er það kallað einu nafni Brúnir (158).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„62. Er vitað, hver tilgangur Gráuvörðu hefur verið? En Smalavörðu? Sést fyrir þeim enn? Er vitað, hvers vegna þær voru nefndar svo? Smalavarða og Grávarða eru miðja vegu milli bæjanna Skógarkots og Hrauntúns. Annars eru smalavörður um allt hraunið.“