Smalavarða
Smalavarða er vörðubrot í hrauninu á milli eyðibýlanna Skógarkots og Hrauntúns. Varðan stendur austast á Neðstubrún (sem kallast einnig Smalavörðubrún eftir vörðunni), norður af Strýtuhólum og austan við Hrútakletta.
Líklegasta staðsetning Smalavörðu er fremst á aflöngum og mosagrónum hraunhrygg, sem er skammt austan Hrauntúnsgötu og snýr frá norðri til suðurs. Varðan er löngu hrunin og lítt áberandi í landslaginu, en hefur eflaust sést vel af hryggnum áður fyrr.
Smalavarða í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Þaðan frá Djúpudölum, hækkar hraunið norður-eftir, og er það kallað einu nafni Brúnir (158). Er fyrst Neðsta-brún (159); austast á henni er Smalavarða (160); er það dálítil grjóthrúga, norður og upp frá Strýtuhólum (161); brúnin er einnig kölluð Smalavörðubrún (162). Vestur frá henni, norður frá Djúpudölum, eru hólar nokkrir, er heita Hrútaklettar (163). Dálítið ofar en Neðsta-brún er Mið-brún (164), þá Efsta-brún (165). Þar sjezt fyrst heim að Hrauntúni, þegar þessi gamla gata er farin. Austur af Miðbrún eru Stórhólar (166) tveir [...].“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„27. Er Magnúsarklettsskógur stór. Hvar er Magnúsarklettur sá, er skógurinn dregur nafn af? Er vitað um tilefni nafnsins? Hvernig var skógurinn nýttur þarna í hrauninu? Hefur gróðurfar breytzt þar á síðari árum, t.t.v. með tilkomu Þjóðgarðsins? Magnúsarklettsskógur liggur norðan við Mosalág. Nær að Músarhólum, nær að Smalavörðu hún í vestur að nýja þjóðgarðsveginum. Notaður til eldiviðar frá Skógarkoti. Lágskógur hefur þéttst.“
„62. Er vitað, hver tilgangur Gráuvörðu hefur verið? En Smalavörðu? Sést fyrir þeim enn? Er vitað, hvers vegna þær voru nefndar svo? Smalavarða og Grávarða eru miðja vegu milli bæjanna Skógarkots og Hrauntúns. Annars eru smalavörður um allt hraunið.“