Strýtuhólar

Google Maps
Ornefni Atlas Strytuholar 3D7c

Strýtuhólar

Strýtuhólar eru strýtumyndaðir hólar í hrauninu fyrir norðaustan Sand-Gíslahæð. Svæðið fyrir austan hólana kallast Magnúsarklettsskógur og var nytjað af ábúendum Skógarkots; hafa þeir meðal annars farið þangað um ónefndan götuslóða sem liggur fram hjá Strýtuhólum.

Strýtuhólar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Góðan kipp austur frá Skygni er hæð lítil, sem snýr frá norðri til suðurs, með brekku vestan-í, sem heitir Sand-„Gíslahæð" (147). Í brekkunni er lítið gildrag með sandflagi, og gæti hugsazt, að hæðin hefði nafn af gilinu og rjetta nafnið væri Sandgilshæð (148); stutt fyrir austan hana eru strýtumyndaðir smáhólar, sem heita Strýtuhólar (149). Þar fyrir austan tekur við áður-nefndur Magnúsarkletts-skógur með Mangúsarkletti (150) h.u.b. í miðju [...]

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti örnefnið Strýtuhólsgren inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni