Grenhóll

Google Maps
Ornefni Atlas Grenholl 507B

Grenhóll

Grenhóll er aflangur hraunhóll við vesturrætur Syðri-Gapahæðar. Hóllinn snýr frá austri til vesturs, þar sem hann verður allgrýttur, og við norðurhlið hans er lítil hringmynduð laut.

Vestan Grenhóls eru mosagrónar flatir og á þeim liggur greinilegur götuslóði fram hjá hólnum sem og gömlu, grjóthlöðnu skotbyrgi skammt suðvestan hans. Norðan byrgisins er Þorsteinsvarða.

Grenhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Norðaustur-af [Selhólum] er Syðri-Gapahæð (62); snýr hún í suðaustur og norðvestur; er hún skógi vaxin að suðaustan, en skógarlítill að norðaustan. Vestan-í henni er sjerstakur klapparhóll; hann heitir Grenhóll (63).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

31. Er Grenhóll stór? Er gróður í honum? Var/er greni þar? Grenhóll er vallgróinn smáhóll, grenhólar vestan í móti. Ekki verið í notkun á þessari öld.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Grenhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni