Þorsteinsvarða

Google Maps
Ornefni Atlas Thorsteinsvarda Fba8

Þorsteinsvarða

Þorsteinsvarða (áður Tvívörður) er varða á bjúgmynduðum hraunbala fyrir norðan Músahóla og vestan við Grenhól. Hún er kennd við Þorstein Þorbergsson, vinnumann í Skógarkoti, sem hlóð hana skömmu fyrir aldamótin 1900. Voru þar fyrir tvær vörður, sem kölluðust Tvívörður, og sést hitt vörðustæðið nokkrum metrum fyrir austan vörðuna sem nú stendur. Nokkuð er af götuslóðum í hrauninu næst vörðunni, sem og hlaðið skotbyrgi.

Þorsteinsvarða í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Austur af Miðbrún eru Stórhólar (166) tveir, þar sem hækkar hraunið til norðausturs frá Mosalág, þar til nokkuð fyrir norðan Músarhóla og upp undir Tvívörður (167). Þær eru í stórum bala, bar sem hraunið hættir að hækka, og heita þær nú Þorsteins-varða (168). Því að rjett fyrir 1900 var vinnumaður í Skógarkoti, sem Þorsteinn hjet Þorbergsson, og hlóð hann eina vörðu úr tveimur.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„64. Er vitað, hvern tilgang Tvívörður hafa haft? Nei.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Þorsteinsvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 200 metrum sunnar.

Heimildir

Tengd örnefni