Músahólar

Google Maps
Ornefni Atlas Musaholar E938

Músahólar

Músahólar (einnig ritaðir Músarhólar) er hólaþyrping við austurmörk Magnúsarklettsskógar, skammt norður af Bruna. Hólarnir samanstanda af nokkrum hraundrýlum á lágum bala með jarðfalli á toppnum. Norðan við hólana er mosavaxin hraunflöt þar sem finna má svokallaða Þorsteinsvörðu.

Tveir greinilegir götuslóðar liggja fram hjá Músahólum frá Magnúsarklettskógi. Annar þeirra liggur til norðausturs um áðurnefndar flatir með stefnu á Einiberjahæðir, en hinn fer áleiðis að Syðri-Gapahæð.

Músahólar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Þar fyrir austan [Strýtuhóla] tekur við áður-nefndur Magnúsarkletts-skógur með Mangúsarkletti (150) h.u.b. í miðju; er það nokkuð hár, sjerstakur hraunklettur; nær skógur þessi í austur að smá-hólum, sem heita Músarhólar (151); eru þeir rjett fyrir norðan áður-nefndan neðri eða vestur-enda á Bruna; norður frá þeim ganga lágir og sljettir mosabalar með gras- og skógar-lautum, allt austur að Syðri-Gapahæð.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

27. Er Magnúsarklettsskógur stór. Hvar er Magnúsarklettur sá, er skógurinn dregur nafn af? Er vitað um tilefni nafnsins? Hvernig var skógurinn nýttur þarna í hrauninu? Hefur gróðurfar breytzt þar á síðari árum, t.t.v. með tilkomu Þjóðgarðsins? Magnúsarklettsskógur liggur norðan við Mosalág. Nær að Músarhólum, nær að Smalavörðu hún í vestur að nýja þjóðgarðsveginum. Notaður til eldiviðar frá Skógarkoti. Lágskógur hefur þéttst.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti örnefnið (ritháttur: Músahólar) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni