Rauðshóll

Google Maps
Ornefni Atlas Raudsholl 87C7

Rauðshóll

Rauðshóll (eða Rauðhóll) er hóll við norðurenda Hrafnagjár. Hann er um 15 metra hár og einkennist af grámosagrónum hlíðum og hringmyndaðri klettaborg á toppnum.

Hóllinn var áður landamerki milli Þingvalla og Gjábakka og voru mörk jarðanna dregin um hann milli Hrafnagjár og Innri-Gapahæðar. Rauðshóll hefur einnig verið kennileiti á fjölfarinni leið milli Gjábakka og Raftviðarhlíðar. Djúpar götur sjást við austanverðan hólinn. Ekki var þó hættulaust að ráfa af leiðinni, því sprungur leynast víða við Rauðshól, einkum á vesturhliðinni þar sem girðing var síðan lögð eftir stofnun þjóðgarðs á Þingvöllum. Nú hefur girðingarstæðinu verið breytt í fjölnota göngu- og reiðbraut og liggur hún fast upp við hólinn.

Rauðshóll í frumheimildum

Landamerkjaskrá Þingvallabæjar, undirrituð af séra Jens Pálssyni Þingvallapresti 1886 og þinglýstri 1890, tilgreinir eftirfarandi um Rauðshól:

Úr klofnum hellusteini á Langatanga liggja svo mörkin beina stefnu að sjá í slakkann milli Gildruholta og allt til markavörðu við hinn forna svonefnda Prestsveg, þá ræður Prestsvegurinn mörkum til Hallstígs á Hrafnagjá, og svo Hrafnagjá inneptir þar til hún þrýtur við Rauðshól. Úr Rauðshól í vörðu á sprungnum Klapparhól á Innri-Gaphæðum, þaðan beint í Hlíðarstíg, úr Hlíðarstíg beina stefnu yfir Þúfuhól í Hrafnabjörg.“

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Austur af Flekkuhól, norður frá Selstíg, eru tveir stórir, sjerstakir hólar með litlu millibili. Þeir heita Svínhólar (64). Þar er Þingvallahraun hæst og hallar þaðan í allar áttir, nema austur. Er þaðan víðsýni mikið. Suðaustur af Svínhólum, norðaustur af Hrafnagjárenda (65), er allstór hóll, sem Rauðhóll (66) heitir. Fyrir norðan Svínhóla kemur Hrafnagjá aftur í ljós, þó miklu sje hún minni en að sunnanverðu, og heitir nú Gaphæðagjá (67), og í Innri-Gapahæð (68) hverfur hún alveg.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

2. Hrafnagjá? Sá gjársveimur byrjar inn við Brúnkolluhöfða, sem er í vestur frá Prestastíg. Ber lítið á gjánni nema á köflum fram að Rauðshól, sem er ofan við Selstíg [...]“

21. Heitir hallinn Sigurðarsel (sjá bls. 149. ofarlega)? Er vitað um tilefni nafnsins? Sigurðarsel er skógarsvæði, sem nær frá Rauðshól og Hrafnagjá norður í slakka, sem er sunnan við Svínhóla, vestur með Hellishæð og sameinast Hábrún þar sem nú er nýi þjóðgarðsvegurinn.“

31. Rauðshóll? Rauðshóll er ofan við Selstíg, klofinn af Hrafnagjá.“

„[115.] Rauðshóll er innan við Selstíg á Hrafnagjá.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Rauðshól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni