Sláttubrekka
Sláttubrekka er grasbrekka í suðaustanverðum rótum Ármannsfells, skammt sunnan Stórkonugils og Hofmannaflatar og norður af Víðivöllum. Af nafninu að dæma hefur þar verið slægjublettur hraunbúa í Þingvallalandi.
Sláttubrekka í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Austur úr Ármannsfelli gengur lág öxl með grasbrekku sunnan-í, sem heitir Sláttubrekka (98) og er þjett við veginn inn á Hofmannaflöt (99). Litlu fyrir sunnan Sláttubrekku eru sandflatir, sem ganga niður í hraunið, dálítið vaxnar skógi og eru auðsjáanlega myndaðar af vatnsrensli úr fjallinu. Þær heita Víðivellir (100).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:
„Stórkonugil (5) er í vestur frá Hofmannaflöt, djúpt og dimmt, sker fjallið upp á brún. Framar og vestar kemur brekka sem kölluð var Sláttubrekka (6).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Sláttubrekku inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.