Syðri-Gapahæð
Syðri-Gapahæð, eða Syðri-Gaphæð í daglegu máli, er önnur af tveimur Gapahæðum suðaustan Hrauntúns. Hún er skammt norðan við Selhóla og Flekkuhól, vestan Gapahæðagjár, og hallar til norðvesturs niður að Grenhól.
Norðan hæðarinnar er Innri-Gapahæð og á milli þeirra er skógarlítil lægð, þar sem finna má hólinn Gapa sem hæðirnar eru kenndar við. Frá honum liggja Gapahæðaslóðar til Hrauntúns. Önnur leið, Gapahæðagata, liggur frá Skógarkoti yfir Syðri-Gapahæð og þaðan austur að Raftviðarhlíð.
Syðri-Gapahæð í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Norðaustur-af [Selhólum] er Syðri-Gapahæð (62); snýr hún í suðaustur og norðvestur; er hún skógi vaxin að suðaustan, en skógarlítill að norðaustan. Vestan-í henni er sjerstakur klapparhóll; hann heitir Grenhóll (63).“
„Norður af Svínhólum hallar hrauninu talsvert til norðurs og norðvesturs. Þar eru Gapahæðir (80), syðri og innri; á milli þeirra er skógarlítið svæði. Þar er hóll einn sjerstakur, holur að innan, sem hæðirnar bera nafn af; ofan-í hann er op stórt og heitir því Gapi (81). Rjett hjá honum er annar hellir í flötum bala, sem hafður var til fjárgeymslu frá Hrauntúni, þó illur væri. Innri-Gapahæð (82) snýr meira til norðurs og suðurs en sú syðri og er skógarlítil.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„30. Gaphæðir eða Gapahæðir? Gaphæðir eru í austur frá Selhólum, vestan við gjána Hrafnagjá. 2 hæðir með breiðum slakka á milli. Í honum miðjum er sérkennilegur hóll strýtumyndaður. Norðan í hólnum er glufa og þegar betur er að gáð er þar hellir inni. Vestan við hólinn er smá hellir. Var notaður fyrir fé frá Hrauntúni.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Syðri-Gapahæð (með þeim rithætti) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu (64.27039,-21.0131). Pétur notar ýmist ritháttinn Gapahæðir eða Gaphæðir í sínum skrifum.