Innri-Sandskörð

Google Maps
Ornefni Atlas Innri Sandskord 27F3

Innri-Sandskörð er vík í Þingvallavatni vestan Arnarfells og önnur af tveimur Sandskörðum. Hin víkin er sunnar og nefnist Syðri-Sandskörð; hún er aðskilin þeirri syðri af litlum nesodda með skúta sem heitir Hellir. Sandfjörur eru í báðum víkunum.

Ísinn á Þingvallavatni rifnar (eða rifnaði) árvisst frá Sandskörðum og þvert yfir vatnið í Rauðukusunes. Þetta árstíðabundna fyrirbæri er kallað Sandskarðsbrestur.

Innri-Sandskörð í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá Arnarfells frá 1982:

„Bergstallur fjallsins að norðvestan er hár, víða 15-20 m á hæð, beint niður í vatn. Þar sem hann endar að norðaustan er klettadrangur úti í vatninu, sem heitir Karl (19). Austan við hann eru tvær víkur, Syðri-Sandskörð (20) og Innri-Sandskörð (21). Þær eru greinilegar og slakkar upp af þeim. Milli þeirra er bergstallur eða skúti, sem fellur inn í, sem heitir Hellir (22).“

Kristján segir þá í svari við spurningalista (í kringum 1982–1985) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnaskrá Arnarfells:

Syðri-/Innri-Sandskörð? Norðan í fjallinu, sandfjara.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Sandskörð inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við víkurnar tvær.

Heimildir

Tengd örnefni