Klofhóll (Arnarfell)

Google Maps

Klofhóll er staðsettur 300 metrum suðvestan Arnarfells og er sundurskorinn af Langatangagjám. Gömul reiðleið milli Arnarfellsbæjarins og Mjóaness liggur fram hjá hólnum að austanverðu.

Klofhóll í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá Arnarfells frá 1982:

„Norðaustan við Langatanga eru tvær gjár samsíða vatnsbakkanum og heita Langatangagjár. Þær eru í beinu framhaldi af Hrafnagjá. Við suðurenda þeirrar, sem er nær vatninu, eru klettadrangar, sem heita Sauðasteinar. Sunnan við þá eru tvær litlar víkur, Sauðasteinavíkur. Þar eru góðir veiðistaðir. Norðar er nokkuð áberandi hóll, sem vestari gjáin gengur gegnum. Hann heitir Klofhóll.“

Kristján segir þá í svari við spurningalista (í kringum 1982–1985) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnaskrá Arnarfells:

3. Er vitað um tilefni nafnsins Sauðasteinar? 2 klettahólar sem gáfu skjól í veðrum. Eru þeir háir? Nei.“

Síðar ritar Kristján örnefnið Klofhól í sviga fyrir aftan svarið. Má því vera að bæði örnefnin hafi verið nýtt sem fjárskjól.

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Klofhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni