Sauðasteinar (Arnarfell)

Google Maps

Sauðasteinar eru við suðurenda Langatangagjáa, u.þ.b. 1 km sunnan Arnarfells. Vestan þeirra eru Sauðasteinavíkur.

Sauðasteinar í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá Arnarfells frá 1982:

„Norðaustan við Langatanga eru tvær gjár samsíða vatnsbakkanum og heita Langatangagjár. Þær eru í beinu framhaldi af Hrafnagjá. Við suðurenda þeirrar, sem er nær vatninu, eru klettadrangar, sem heita Sauðasteinar. Sunnan við þá eru tvær litlar víkur, Sauðasteinavíkur. Þar eru góðir veiðistaðir.“

Kristján segir þá í svari við spurningalista (í kringum 1982–1985) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnaskrá Arnarfells:

3. Er vitað um tilefni nafnsins Sauðasteinar? 2 klettahólar sem gáfu skjól í veðrum. Eru þeir háir? Nei.“

Síðar ritar Kristján örnefnið Klofhól í sviga fyrir aftan svarið. Má því vera að bæði örnefnin hafi verið nýtt sem fjárskjól.

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Sauðasteina inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni