Hábrún

Google Maps
Ornefni Atlas Habrun A7f1

Hábrún

Hábrún er efri hluti Brúnar, vestan Hrafnagjár, þar sem land tekur að halla niður í Þingvallalægðina. Mörk Hábrúnar eru hér um bil dregin frá svæðinu ofan Litlugjár í suðri og þaðan inn eftir hrauninu að Hábrúnarkletti. Eftir það eru mörkin nokkurn veginn ákvörðuð við Hellishæð og slakkann sunnan Svínhóla.

Gömul alfaraleið liggur frá Þórhallastöðum upp Hábrún á milli Nyrðri- og Syðri-Klukkuhóla og þaðan austur að Klukkustíg.

Hábrún í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Frá Gjábakkastíg vestur að Tjörnum (16) hækkar hraunið norður-eftir, norður fyrir Þingvallahelli (17); er svo að mestu leyti flatt norður-af Sigurðarseli (18) og Hellishæð (19) og vestur-að Hábrún (20), en hallar þaðan vestur-að Mosalág (21) og Lágbrún (22). Þetta heitir einu nafni Brún (23). Þetta var þrautastaður, að því er sauðbeit snerti á vetrum, bæði fyrir hraunbúa og aðra; jafnvel var fje rekið þangað til beitar austan úr Laugardal.“

Austur frá Klukkuhólum, uppi á Brúninni, þar sem hún er hæst, er Hábrúnarklettur (42); er það einnig grjóthóll og ekki stór. Sunnan og vestan í Brún er skógur þjettur og hraunið grösugt, svo að þar sjest valla á stein eða flag, nema þar, sem einstakir stórir grjóthólar eru, þrátt fyrir, að þar var allt af mest áníðslan með fjárbeit og skógarhöggi.“

„Skammt norður frá Tjörnum liggur vegurinn yfir bratta klapparhæð; heitir hún Melur (116). Þaðan gengur lægð til norðausturs, vestan-undir Brúnar-hallanum. Það heitir Lágbrún (117); nær hún allt að stórum grjóthól, sem lokar fyrir norðurenda hennar. Á hól þessum er varða, sem heitir Stórastekkjarvarða (118), og er hún beint niður frá áðurnefnd- um Nyrðri-Klukkuhól (119).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar þá í spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

9. Hvar og hvernig er Hábrún? Hábrún hvers? En Lágbrún? Hábrún er svæði sem liggur frá Svínhólum, í suðvestur, hefur sömu stefnu og Hrafnagjá, allbreið spilda, vel viði vaxin og grösug. Hún nær vestur fyrir gamla Þingvallahelli og taka þar við hallar, viði vaxnir niður að vatninu. Norður af Hábrún miðri eru 2 strýtumyndaðir hólar sem heita Klukkuhólar. Niður af nyrðri hólnum er annar lágur hóll, með velhlaðna vörðu, sem er kölluð Stekkjarvarða, en í vestur frá henni er all þétt skógarbelti, ekki mjög breitt, sem kallað var Lágbrún. Hún nær vestur að Mel, sem er langur klapparbali, austan við gamla Þingvallaveginn, sem liggur að Skógarkoti.“

21. Heitir hallinn Sigurðarsel (sjá bls. 149. ofarlega)? Er vitað um tilefni nafnsins? Sigurðarsel er skógarsvæði, sem nær frá Rauðshól og Hrafnagjá norður í slakka, sem er sunnan við Svínhóla, vestur með Hellishæð og sameinast Hábrún þar sem nú er nýi þjóðgarðsvegurinn.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Hábrún inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar með þremur punktum skammt ofan og austar Litlugjár.

Heimildir

Tengd örnefni