Hlíðarflár

Google Maps
Ornefni Atlas Hlidarflar 5A92

Hlíðarflár

Hlíðarflár (eða Hlíðarfláar) er landsvæðið milli Gildruholtsgjár og Hlíðargjár við vesturmörk Hrafnabjargaháls. Landinu hallar þar til vesturs og er sundurskorið af ótal smásprungum.

Hlíðarflár í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„[Gildruholt] eru á austurbarmi Gildruholtsgjár (71), sem byrjar í Gjábakkahrauni (72), skammt austur-af Hallstíg, og heitir Bæjargjá (73) þangað til vegurinn liggur yfir hana á móts við Gjábakkabæ; svo fær hún hitt heitið norður-fyrir Gildruholt. Þar hverfur hún á dálitlum kafla, og heita þar Hlíðarflár (74) [...] Hlíðarflár eru dálítill blettur vestan-í Hrafnabjargahálsi. Norður-af þeim opnast gjá mikil, sem heitir Hlíðargjá (76), sjest fyrir henni alla leið inn í Skjaldbreið, og heitir Söðulhólagjá (77) fyrir norðan Prestastíg (78).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

35. Hvernig er Hlíðarflár? Hvaða hlíð eru þeir kenndir við? Söðulhólagjá er gjásveimur skammt fyrir innan, við Sandgíg, sem er suðvestur af Skjaldbreið. Svo liggur gjáin suðvestur um hraunið austan við Mjóufjöll. Um Prestastíg breytist nafnið á gjánni. Eftir það heitir hún Hlíðargjá fram á Hlíðarfláa, svo Gildruholtsgjá fram á móts við Klukkuhól. Þá Bæjargjá, hverfur á kafla undir, þar sem Sogsvegurinn er, en kemur svo í ljós á Mjóaneshrauni, endar í vatninu í Latvík. (Sjá örnefnaskrá Mjóaness).“

37. Er vitað um tilefni nafnanna Raftahlíð, Prestahraun (hvar er það), Brúnkolluhöfði? Gjáin, sem lýst er í sp. 35, heitir mörgum nöfnum. Undir vestari barmi hennar er, fremst innan við Gildruholt, Hlíðarfláar vel grösugir og hefur verið all mikill skógur þar. Svo kemur Hlíðarharun innan við það heitir Raftviðarhlíð og innar Prestastígur. Vestan við Prestastíg er úfið hraun, mikið mosavaxið, Prestahraun og nær að Brúnkolluhöfða.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985, bls. 11:

„Næsti kafli gjáarinnar heitir Gildruholtsgjá og nær inn á Hlíðarfláa, sem eru vestur af miðjum Hrafnabjörgum.“

Pétur merkti Hlíðarflár inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni