Mosalágarhæð
Mosalágarhæð er hraunbali við vestanverða Mosalág. Breiður og greinilegur götuslóði liggur yfir hæðina, sem ábúendur Skógarkots fóru um á leið sinni til Gapahæða og Raftviðarhlíðar.
Mosalágarhæð í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Mosalág er laut stór eða dalur norðan-undir Höfðum, vestan-undir Sláttubrekkum. Norðan-við hana heitir Magnúsarklettsskógur (57). Vestan-við hana er Mosalágarhæð (58), stór grjótbali, sem snýr h.u.b. í norður og suður.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Mosalágarhæð inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.