Nýi-Stekkur
Nýi-Stekkur er stekkur frá Skógarkoti. Hann er sagður vera í klofnum gjáhól norðan eða norðaustan við Ámundahóla og vestan Skúta. Stekkurinn hefur sennilega komið í stað Gamla-Stekks.
Annan stekk með sama nafni má finna við rætur Ármannsfells.
Nýi-Stekkur í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Norðaustan-við [Tjarnir] eru Ámundahólar (34), að mestu grasi og skógi vaxnir. Austur-af þeim er Nýi-stekkur (35); hvaðan hann hefir verið notaður, er mjer ókunnugt um, en líklega hefir það verið frá Skógarkoti.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„16. Sést fyrir Nýjastekk enn? Er vitað, hvaðan hann var? Er vitað, hvenær hætt var að færa frá á bæjunum þarna? Nýistekkur er í klofnum gjáhól, en með graskraga í kring. Var notaður frá Skógarkoti. [Setningunni „Þingvöllum, Hrauntúni og Vatnskoti.“ er síðar bætt við út á rönd.] Mun hafa verið hætt fráfærum fljótlega í fyrra stríði, en frá Skógarkoti var síðast fært frá 1925.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Nýja-Stekk inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.