Ólafsdráttur

Google Maps
Ornefni Atlas Olafsdrattur 5315

Ólafsdráttur

Ólafsdráttur er svæði í Þingvallavatni upp við Hallinn á Hrafnagjá, milli Hallviks og Arnarfellsenda, þar sem finna má stærstu riðstöðvar kuðungableikjunnar í öllu vatninu.

Nafnið er talið vera dregið af Ólafi helga Noregskonungi, en Þingvallakirkja var helguð honum í kaþólskri tíð. Minnst er á örnefnið Ólafsdrátt í máldögum Gísla Jónssonar upp úr 1570 og aftur í lok sömu aldar, þegar brottrekinn Þingvallaprestur ruddi grjóti ofan í Ólafsdrátt til að spilla veiðinni fyrir arftaka sínum í embætti, en svæðið tilheyrði Þingvallabæ og þótti hinn besti veiðistaður. Svæðið var síðan leigt Gjábakkabændum á síðari tímum.

Veiðibann gildir í Ólafsdrætti frá 1. júlí til og með 31. ágúst á hverju ári. Mörkin er dregin frá Gjáarendahólmum í Hallviki suður að Einbúa á Arnarfelli.

Ólafsdráttur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Upp-af Hallviki (24) er Veiðistígur (25) á Hrafnagjá. Veiðin undir Halli frá Forna-seli (26) (sem er grashvammur stór við vatnið, norðan-við Arnarfellsenda) tilheyrði Þingvöllum, og heitir pláss það Ólafsdráttur (27). Það var að mestu ljeð Gjábakka-bónda, og galt hann fyrir það veturgamla gimbur á vori hverju, og voru það víst góð skifti fyrir hann.“

Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður og þáverandi ritsjóri Árbókarinnar, bætir við í neðanmálsgrein á sömu blaðsíðu:

„1) Kenndur við Ólaf konung helga; kirkjan á Þingvöllum var helguð honum.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar þá í spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

14. Er vitað um tilefni nafnanna Ólafsdráttur (er átt við veiðina á stóru svæði undir Halli, eða er átt við eina lögn, ákveðinn veiðistað?). Að sögn eignaður Ólafi helga, sem var verndari Þingvallakirkju, um 50 m breitt svæði undan miðjum hallinum, er mikið hrygningarsvæði.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Ólafsdrátt inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar skammt norðaustan Þvottu (64.23216,-21.0526).

Heimildir

Tengd örnefni