Sauðasteinar
Sauðasteinar eru hólar í Þingvallahrauni fyrir neðan Skógarkot, skammt sunnan við Vatnsdal og mitt á milli Skógarkotsgötu og Veiðigötu. Sunnan við Sauðasteina er skógarlítið svæði sem kallast Eyður.
Annað örnefni með sama nafni er staðsett sunnan við Arnarfell.
Sauðasteinar í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Þar austur-frá [Fuglastapaþúfu], allt að Mel (112), eru mosaflesjur skóglausar, sem heita Eyður, upp-að svonefndum Sauðasteinum (113), sem eru háir hellubalar með grasbrekkum að sunnan; snúa þeir austur og vestur. Austan-við þá og Hellisvörðu var götuslóði frá Skógarkoti að Öfugsnáða, kallaður Veiðigata (114).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„45. Sauðasteinar [hvert er tilefni nafnsins?]. Smalaheiti.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Sauðasteina inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.