Syðri-Klukkuhóll

Google Maps
Ornefni Atlas Sydri Klukkuholl Db02

Syðri-Klukkuhóll

Syðri-Klukkuhóll er annar af tveimur Klukkuhólum í brekkunni neðan Hábrúnar. Milli hans og Nyrðri-Klukkuhóls liggur svokölluð Klukkustígsleið frá Skógarkoti og Þórhallastöðum suðaustur að Klukkustíg. Hólarnir hafa verið notaðir sem mið á leiðinni, en erfitt getur þó reynst að greina þá í dag vegna mikillar grósku í biskiskóginum.

Syðri-Klukkuhóll er strýtumyndaður, klofinn á toppnum og suðurhlið hans líkist helst klettavegg úr fjarlægð. Austan hólsins liggja greinilegir götuslóðar suður frá Tjörnum og Ámundahólum inn eftir Hábrún og áleiðis að Sigurðarseli.

Annar hóll með svipuðu nafni, Klukkuhóll, er staðsettur norðan við Þingvallakirkju.

Nyrðri-Klukkuhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Suður frá [Nýja-Þingvallahelli] er brekka með vörðubroti; heitir Skúti (37). Þar norður-frá, vestan í hallanum, eru Klukkuhólar (38); þeir eru tveir stórir grjóthólar með lautum og skógi; standa þeir andspænis hvor öðrum, með slakka á milli. Norður frá þeim, einnig vestan í hallanum, er Viðarklettsskógur (39), með kletti þeim, er skógurinn ber nafn af, norðast og austast sunnan-undir svonefndum Höfðum (40) [...]“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

19. Er vitað um tilefni nafnsins Klukkuhólar? Klukkuhólar hafa á milli sín leifar af gömlum götum, sem lágu óljóst á köflum, frá Þingvöllum yfir Hábrún að Klukkustíg og þaðan suðaustur um sveitir.“

Búið er að handskrifa viðbót við svarið aftan á einu blaðinu í skránni:

Fyrsta leiðin sem lá frá Þingvöllum, lá um efri Velli yfir Háugjá á Sandhólana framhjá Þórhallastöðum, á milli Klukkuhóla og Klukkustíg yfir Hrafnagjá fyrsta færa leiðin til austur sveita.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Syðri-Klukkuhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni