Viðarklettsskógur
Viðarklettsskógur (eða Viðarklettarskógar) er skógarsvæði í hrauninu austan Þórhallastaða. Nafnið er dregið af Viðarkletti, sunnan Höfða og Litlu-Hellishæðar.
Mörk skógarins eru lauslega ákvörðuð við brekkuhallann vestan Hrafnagjár, sem nefnist Brún. Skóginum er lýst frá svæðinu norðan Nyrðri- og Syðri-Klukkuhóla austur á fulla hæð Brúnar og allt niður að Eyðum, sem eru skammt vestan Mosalágar og Sláttubrekkna.
Viðarklettsskógur í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Þar norður-frá [Skúta], vestan í hallanum, eru Klukkuhólar (38); þeir eru tveir stórir grjóthólar með lautum og skógi; standa þeir andspænis hvor öðrum, með slakka á milli. Norður frá þeim, einnig vestan í hallanum, er Viðarklettsskógur (39), með kletti þeim, er skógurinn ber nafn af, norðast og austast sunnan-undir svonefndum Höfðum (40); nær skógur þessi austur á fulla hæð Brúnar og niður að Eyðum (42), sem eru skógarlausar mosaflesjur.“
„Frá Litlu-Hellishæð hallar suðvestur að Viðarklettsskógi og vestur að Höfðum (53), sem eru skógi og grasi vaxnar hæðir og lautir, og ná þær norður að Mosalág, norður að Ketilhöfða (54).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„(Hvernig er Viðarklettur? Dró hann nafn af skóginum?) Trúlega.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti örnefnið (ritháttur: Viðarklettaskógur) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar með tveimur punktum norðaustan Klukkuhóla (64.25774,-21.0367 og 64.25618,-21.0384).