Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - Þingfundur á Þingvöllum - Jón Sigurðsson forseti og frelsishetja
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson fær góð eftirmæli í fjörlegri dagskrá á Þingvöllum næstkomandi fimmtudag.
Fyrsta fimmtudagskvöld sumarsins verður leitt af Guðna Ágústssyni fyrrverandi alþingismanni og ráðherra.
Ber kvöldið yfirskriftina: Þingvallahátíð! Jón Sigurðsson forseti og frelsishetja.
Dagskráin verður eftirfarandi:
1. Guðni Ágústsson setur hátíðina
2. Karlakór Selfoss syngur
3. Svandís Dóra Einarsdóttir flytur ljóð
4. Lilja Dögg Alfreðsdóttir minnist Jóns Sigurðssonar
5. Gunnlaugur Bjarnason óperusöngvari flytur ljóð Hjálmars Jónssonar Land og þjóð.
6. Karlakór Selfoss syngur
7. Guðni Ágústsson flytur lokaorð.