Fornleifaskóli barnanna 5. júlí

Fornleifaskóli barnanna í fullum gangi

Fornleifaskóli barnanna er opinn frá 14:00 - 16:00. Allajafna eru börn í um 20-30 mínútur að leita og skrá "fornleifar" sem þau finna. Fornleifaskólinn er staðsettur þar sem Valhöll áður stóð.

Markmið fornleifaskólans er að kynna krakkana fyrir fornleifarannsóknum og leyfa þeim að grafa eins og „alvöru fornleifafræðingar“ eða þar um bil.

Notast er við múrskeiðar til að skafa upp mold og grafa upp ýmsa „forngripi“.
Uppgraftarreitnum er svo hagað að hann líkist þingbúð sem hentar vel þar sem gestirnir verða í næsta nágrenni við helsta fornleifasvæðið.

Í lokin fá þáttakendur viðurkenningarskjal um að hafa lokið fornleifaskóla barnanna á Þingvöllum.
Fornleifaskólinn er opinn öllum og þáttaka er ókeypis