Sungið á Þingvöllum - Gjallandi
Gjallandi hefur upp raust sína við Þingvallakirkju klukkan 16:00, sunndaginn 16. ágúst næstkomandi
Þingvellir
Sungið verður í og við Þingvallakirkju. Gjallandi verður í þjóðbúningum og ef á þarf að halda verður sungið í kirkjunni.
Viðburðuinn hefst klukkan 16:00.
Sviðslistahópurinn Gjallandi var stofnaður sumarið 2025 af átta söngkonum sem allar stunduðu saman nám við söngdeild Listaháskóla Íslands.
Þær vilja skapa sér og öðrum ungum listamönnum fjölbreytt verkefni á sviði sviðslista. Sem sitt fyrsta verkefni, í júlí 2025, setti Gjallandi upp óperuna Suor Angelica eftir Giacomo Puccini við góðar undirtektir. Til þess hlutu þær styrk frá Hvatningasjóði ungra listamanna í Garðabæ og Menningarsjóði FÍH.
Annað verkefni hópsins voru hátíðartónleikar milli jóla og nýárs 2025 þar sem þær fluttu A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten, í bland við íslensk verk fyrir kvennraddir og hörpu. Í júní síðastliðnum endurtóku þær svo leikinn og fluttu Suor Angelica á Sönghátíð í Hafnarborg. Næsta verkefni hópsins eru tónleikarnir Dætur Evu — Systur Maríu, á 15:15 tónleikaröðinni í Fella- og hólakirkju 22. ágúst næstkomandi.