Sungið á sunnudögum

Svarthvít. Stór karlakór stendur á palli í regnjökkum og með hvítar húfur. Íslenskir fánar fyrir aftan þá.
Kórasöngur verður á Þingvöllum í sumar
Í sumar á sunnudögum munu kórar koma fram og syngja í þjóðgarðinum. Fyrstu kórarnir til að ríða á vaðið verða Kvennakór Háskóla Íslands, Vox feminae og Hljómeyki

Dagskrá:
13:00 Kvennakór Háskóla Íslands
- Staðsetning Lögberg

13:30 Vox Feminae
- Staðsetning við útsýnispall á Haki hjá gestastofu

14:00 Hljómeyki
Kvennakór Háskóla Íslands

Kvennakór Háskóla Íslands

Klukkan 13:00 stígur Kvennakór Háskóla Íslands á stokk við Lögberg í Almannagjá.

Sungin verða lög úr ýmsum áttum en þó má inni á milli greina þjóðlög af ýmsum toga.

Sungið er á íslensku og ensku í þetta skiptið, en kórinn hefur

þá sérstöðu að hann skipa kórsöngvarar frá tíu menningarheimum og var stofnaður árið 2005. Stjórnandi kórsins er Lilja Margrét Riedel en gestastjórnandi Maxine Dumont.

1. California Dreaming (John Phillips / Michelle Phillips)

2. Lysthúskvæði (Atli Heimir Sveinsson / Davíð Stefánsson/ arr.

Marteinn H. Freðeriksson)

3. Edelweiss (Oscar Hammerstein II / Richard Rodgers / arr. Eleanor Baker)

4. Skye Boat Song (Scottish Folk Song / arr. Paul Langford)

5. Kvæðið um Fuglana (Atli Heimir Sveinsson / Davíð Stefánsson/ arr. Marteinn H. Freðeriksson)

6. Farafina Mousso (Lubiana Kepaou / arr. Maxine Dumont)

7. Sofðu Unga Ástin Mín (íslenskt þjóðlag / arr. Jón Ásgeirsson)

8. Feeling Good (Leslie Bricusse / Anthony Newley / arr. Dorothy Horn)

Vox feminae

Vox feminae

Klukkan 13:30 stígur Vox feminae á stokk við útsýnispallinn á Haki.

Söngdagskrá Vox feminae sunnudaginn 7. júní

1.Ísland farsælda frón

Íslenskt þjóðlag/Jónas Hallgrímsson

2. Músíkulof

Íslenskt þjóðlag

3. Á Sprengisandi

Sigvaldi Kaldalóns/Grímur Thomsen

4. Lysthúskvæði

Íslenskt þjóðlag

5. Hver á sér fegra föðurland

Emil Thoroddsen/Hulda

6. Af ást og öllu hjarta

Íslenskt þjóðlag úr Melodia/úts. Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir

7. Vísur Vatnsenda-Rósu

Íslenskt þjóðlag/úts. Jón Ásgeirsson

8. Vikivaki

Valgeir Guðjónsson/Jóhannes úr Kötlum

9. Þingvallasöngur (Öxar við ána – samsöngur)

Íslenskt þjóðlag/Steingrímur Þorsteinsson

Um kórinn

Kvennakórinn Vox feminae var stofnaður í Reykjavík árið 1993 af Margréti J. Pálmadóttur. Núverandi stjórnandi kórsins er Stefan Sand en hann tók við kórnum í janúar 2023. Kórfélagar eru um 30 talsins frá 30 ára aldri. Trúarleg tónlist ásamt íslenskum þjóðlögum og sönglögum hefur einkennt lagaval kórsins, en jafnframt hefur kórinn lagt rækt við samtímatónlist eftir íslensk tónskáld. Vox feminae kemur reglulega fram við ýmis tækifæri og heldur árlega tónleika að hausti og vori. Þá hefur kórinn gefið út fjóra geisladiska sem allir eru aðgengilegir á streymisveitum.

https://voxfeminae.is/

Hljómeyki

Hljómeyki

Klukkan 14:00 stígur Hljómeyki á stokk á Þingvöllum.

Söngdagskrá Hljómeykis sunnudaginn 7. júní

1. Ávarp fjallkonunnar - Atli Ingólfsson/Þórarinn Eldjárn

2. Hver á sér fegra föðurland - Emil Thoroddsen/Hulda

3. Ísland ögrum skorið - Sigvaldi Kaldalóns/Eggert Ólafsson

4. Vorlauf - Hildigunnur Rúnarsdóttir/Þorsteinn Valdimarsson

5. Ó blessuð vertu sumarsól - Ingi T. Lárusson/Páll Ólafsson

6. Land míns föður - Þórarinn Guðmundsson/Jóhannes úr Kötlum

7. Ávarp fjallkonunnar - Þorvaldur Örn Davíðsson/Þórarinn Eldjárn

8. Sólin heim úr suðri snýr - Sigursveinn D. Kristinsson/Jónas Hallgrímsson

9. Vikivaki - Valgeir Guðjónsson/Jóhannes úr Kötlum

10. Lofsöngur - Sveinbjörn Sveinbjörnsson/Matthías Jochumsson

Um kórinn

Sönghópurinn Hljómeyki var stofnaður árið 1974 og hefur frá upphafi skipað sér í fremstu röð íslenskra kóra. Á rúmlega fimm áratugum hefur kórinn flutt fjölbreytta tónlist, allt frá endurreisnarkórverkum til íslenskrar samtímatónlistar, og frumflutt fjölda verka eftir íslensk tónskáld.

Hljómeyki hefur tekið þátt í helstu tónlistarhátíðum landsins, sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið fram með ýmsum hljómsveitum. Kórinn hefur einnig lagt áherslu á útgáfu hljóðrita og flutning stórra kórverka, meðal annars rússneskra meistaraverka.

Árið 2010 hlaut Hljómeyki silfurverðlaun í Grand Prix kórakeppninni í Tours í Frakklandi og fagnaði 50 ára afmæli sínu með tónleikum í Hallgrímskirkju árið 2024. Stjórnandi kórsins er Stefan Sand.

https://www.hljomeyki.is/