Sungið á Þingvöllum

Viðburðurinn sungið á Þingvöllum er samstarf þjóðgarðsins við Landssamband blandaðra kóra. Kórar munu koma einstaka frídaga í sumar, oftast sunnudaga, og syngja í Almannagjá.

Að þessu sinni mun kór Laugarneskirkju syngja 17. júní klukkan 13:00.
Kór Laugarneskirkju er blandaður kirkjukór sem var stofnaður árið 1992. Í kórnum syngja að jafnaði 25–30 virkir félagar og frá árinu 2018 hefur stjórnandi hans verið Elísabet Þórðardóttir.

Kórinn kemur reglulega fram við guðsþjónustur og athafnir kirkjunnar, og kemur reglulega fram á tónleikum.

Á efnisskránni 17. júní er íslensk kórtónlist sem kórinn mun jafnframt flytja í tónleikaferð sinni til Ítalíu í lok júní.