Kvikmynda og ljósmyndatökur í atvinnuskyni

Í þjóðgarðinum á Þingvöllum gilda sérstakar reglur um kvikmynda og ljósmyndatökur íatvinnuskyni.

Ljósmynda- og kvikmyndatökur eru almennt heimilar innan þjóðgarðsins.  Ljósmynda- og kvikmyndataka í þjóðgarðinum í atvinnuskyni er þó háð samþykki Þingvallanefndar eða þjóðgarðsvarðar í umboði hennar.

Ekki þarf að sérstakt leyfi sé tökumaður einn og geti borið búnað sinn sjálfur. Sækja skal um leyfi til kvikmyndatöku með minnst 7 daga fyrirvara fyrir lítil verkefni en 30 daga fyrir stór verkefni.  Lítil verk teljast þau, þar sem starfsmenn eru 10 eða færri, önnur teljast stór.

Hér er hægt að sækja umsóknareyðublað og lesa allar reglurnar.

Hægt er að senda umsóknina með tölvupósti á thingvellir@thingvellir.is.