Starfsemi þjóðgarðsins á Þingvöllum byggir á þeim stefnumarkandi þáttum sem hafa verið samþykktir af Þingvallanefnd og unnir í nánu samstarfi við hagaðila.
Stefnumörkun Þjóðgarðsins á Þingvöllum
Stefnumörkun Þingvallaþjóðgarðs samþykkt 2018 og gildir til 2038 er aðal stefnumótunarplagg þjóðgarðsins og það sem hann vinnur út frá til að þróa hið friðlýsta svæði til komandi framtíðar.
Eldri stefnumörkun þjóðgarðsins á Þingvöllum frá 2004-2024 má finna hér.
Atvinnustefna
Meginhlutverk atvinnustefnu þjóðgarðsins á Þingvöllum er að skilgreina og móta atvinnutengda starfsemi innan þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Atvinnustefna þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Innkaupastefna
Innkaupastefnu þjóðgarðsins má finna í neðangreindu pdf-skjali.
Jafnréttisstefna
Hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum er jafnréttis gætt og hver starfsmaður er metinn og virtur að verðleikum.
Markmiðið með Jafnréttisstefnu er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla og jöfnum tækifærum
einstaklinga óháð kynferði.
Loftlagsstefna
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur sett sér metnaðarfulla loftslagsstefnu sem helst í hendur við stefnumörkun þjóðgarðsins og framtíðarsýn.
Mannauðsstefna
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er góður og eftirsóknarverður vinnustaður sem leggur áherslu á að vera með hæft starfsfólk með fjölbreytta reynslu. Þjóðgarðurinn leggur áherslu á að vera góður vinnustaður þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.
Persónuverndarstefna
Í starfsemi Þingvallanefndar getur komið til vinnslu persónuupplýsinga, þ.e. upplýsinga um persónugreinda eða persónugreinanlega einstaklinga, sem nefndin telst ábyrgðaraðili að. Þingvallanefnd leggur ríka áherslu á persónuvernd og tryggir öryggi og trúnað þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með hjá nefndinni. Þingvallanefnd vinnur um þessar mundir að gerð persónuverndarstefnu í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem birt verður á síðunni innan skamms.
Þingvallanefnd hefur tilnefnt Lenu Mjöll Markusdóttir sem persónuverndarfulltrúa. Netfang persónuverndarfulltrúans er lena@lex.is. Hægt er að beina fyrirspurnum og ábendingum varðandi persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga hjá Þingvallanefnd til persónuverndarfulltrúans.
Umhverfisstefna
Mótun umhverfisstefnunnar tekur mið af eðli og umfangi þeirrar starfsemi sem fer fram innan þjóðgarðsins og þeim umhverfisáhrifum sem starfsemin getur haft í för með sér, með hliðsjón af nauðsyn sjálfbærrar þróunar. Umhverfisstefna fyrir rekstur þjóðgarðsins hefur verið mótuð á grundvelli greiningar sem fyrir liggur á starfseminni og helstu umhverfisþáttum sem henni tengjast.