Selstígur

Google Maps
Ornefni Atlas Selstigur Aaba

Selstígur

Selstígur er staður við nyrsta hluta Hrafnagjár þar sem hægt er að ganga á milli barma hennar. Stígurinn er eflaust kenndur við Sigurðarsel fáeinum metrum vestar.

Frá gjárbarminum við rústir Sigurðarsels er gengið til norðausturs niður aflangan rima. Sveigt er til hægri ofan í miðri gjánni og farið um brekku sem liggur upp að eystri barminum. Stígurinn er ekki sérlega góður yfirferðar, enda ómerktur og nokkuð kjarrgróinn.

Vestan Selstígs liggur leið til vesturs, fram hjá selinu, og tvístrast þegar komið er upp á Hábrún. Annar angi hennar liggur að Nyrðri-Klukkuhól og virðist sameinast svonefndri Klukkustígsleið, en hinn fer til suðvesturs fram hjá Syðri-Klukkuhól niður að Tjörnum og Klifhólum. Aðrir slóðar liggja samhliða Hrafnagjá nálægt selinu milli Klukkustígs og Svínhóla.

Austan Selstígs liggur götutroðningur fram eftir barmi Hrafnagjár og virðist síðan sameinast djúpum götuslóðum sem liggja á milli Gjábakka og Raftviðarhlíðar.

Selstígur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Eins og áður er sagt, heitir Klukkustígur þar, sem hverfur hallinn á vestri barmi Hrafnagjár. [...] Þar fyrir norðan verður austurbarmurinn hár á dálitlum kafla, en vesturbarmurinn nær því jafn hrauninu, enda hækkar það þar á ný og hallar mót suðvestri; heitir sá halli Sigurðarsel (44). Sunnan í því er stór og falleg brekka, sem heitir Sigurðarselsbrekka (45); suður frá henni, vestur af Klukkustíg, er stór hóll, sem heitir Klukkustígshóll (46). Á gjánni, þar sem barmar hennar eru orðnir jafnir, er Selstígur (47); þar norður-frá eru fornar tóftir, sem má ske hafa verið hið virkilega Sigurðarsel (48).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

Rauðshóll? Rauðshóll er ofan við Selstíg, klofinn af Hrafnagjá.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Selstíg inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 100 metrum innar á Hrafnagjá (64.25688,-21.0127). Þar virðist einnig vera hægt að komast yfir gjána og tiltölulega skýr götuslóði liggur inn að honum að austanverðu.

Heimildir

Tengd örnefni