Klifhólar

Google Maps
Ornefni Atlas Klifholar 8D3e

Klifhólar

Klifhólar eru hólar fyrir vestan Tjarnir, skammt frá Vatnsviki. Þar má finna tvo staka hóla framan við lága brún. Á henni, hér um bil mitt á milli hólanna, eru tvær aflangar lautir sem snúa frá austri til vesturs og um þær liggur greinileg gata upp á brúnina. Vel má vera að þar sé klifið sem hólarnir eru kenndir við.

Gatan við Klifhóla hefur rist djúpa rás í landslagið og virðist hafa verið afar fjölfarin. Mest er hún um sig á um 300 metra löngum kafla vestan við klifið, þar sem henni svipar í raun til margra af helstu þjóðleiðum Þingvallasveitar. Í því samhengi má nefna að forna alfaraleiðin um Þingvallahraun er sögð hafa legið á þessum slóðum fyrir 1789.

Frá Klifhólum liggur gatan til vesturs í átt að Vatnskoti. Brátt hverfur hún undir Vallaveg, en kemur svo aftur í ljós fyrir neðan hann og virðist þaðan liggja fram hjá Fuglastapaþúfu að sunnanverðu. Ekki er hægt að greina götuna með góðu móti við Tjarnir, fyrir neðan klifið, en á þeim slóðum hafa helstu alfaraleiðir sveitarinnar legið til austurs um stíga á Hrafnagjá. Enn önnur leið, afar greinileg, liggur einnig þaðan til norðausturs um Hábrún.

Klifhólar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Upp-af Grunnhólum, vestan-við Tjarnir, eru stórir hólar með djúpum lautum á milli, sem heita Klifhólar (115).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

45. Klifhólar (eru þeir skógarhólar?). Klifhólar eru vestan við Tjarnir. Þar mótar fyrir gamalli götu. Þeir eru ekki mikið grónir.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Klifhóla inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni