Fuglastapaþúfa

Google Maps
Ornefni Atlas Fuglastapathufa 926A

Fuglastapaþúfa

Fuglastapaþúfa (eða Fuglstapaþúfa) er þúfuhnúskur á smáhól fyrir ofan Vörðuvík. Þúfan, sem er mynduð af áburði úr fuglum, stendur ofan á smáhól sem er fáeinum metrum suðaustan við Vallaveg. Getið er um örnefnið Þuríðarvörðu skammt frá þúfunni.

Fuglastapaþúfa í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Stutt fyrir ofan Vatnskot heita Hryggir (110); er það hólaröð, sem snýr austur og vestur. Austan-við þá er Þuríðarvarða (111); stendur hún á smá-hól upp af Vörðuvík. Skammt austar og norðar er Fuglstapaþúfa (111a).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

45. (Fuglstapaþúfa) (hvernig er hún?)? Smá hóll með þúfu efst.“

Helga S. Melsteð, sem ólst upp í Vatnskoti, segir svo í örnefnaskrá Vatnskots frá 1982:

Sunnan við (neðan við) veginn rétt ofan við vatnið (Vörðuvík) stendur Fuglastapaþúfa (51), en Þuríðarvarða er ofan við veginn þar fyrir ofan.

Staðsetning Þuríðarvörðu og Fuglastapaþúfu er röng í grein Ásgeirs [Jónassonar]. Fuglastapaþúfa er hóll með þúfu; gróður er utan í honum. Fuglar sitja oft á þessum hól og þúfunni. Meiri gróður er við Þuríðarvörðu.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti þúfuna (ritháttur: Fuglstapaþúfa) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar tæpum 100 metrum austan við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni