Vörðuvík
Vörðuvík er vík í Þingvallavatni fyrir austan Vatnskot og Veiðitanga. Nafnið er talið vera dregið af Þuríðarvörðu skammt ofar í landinu. Sunnan við Vörðuvík eru Langatangahólmar og nokkuð austan hennar er Öfugsnáði og samnefnd vík.
Ábúendur í Vatnskoti áttu veiðirétt í Vörðuvík. Nú er hún vinsæll stangveiðistaður í þjóðgarðinum.
Vörðuvík í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Vestan-við Öfugsnáða er Vörðuvík (107), og vestan-við hana Dagmálavík (108); er hún austan-við Vatnskotstún. Þá er sker, sem heitir Murtutangi (109). Stutt fyrir ofan Vatnskot heita Hryggir (110); er það hólaröð, sem snýr austur og vestur. Austan-við þá er Þuríðarvarða (111); stendur hún á smá-hól upp af Vörðuvík. Skammt austar og norðar er Fuglstapaþúfa (111a).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„47. Var varða við Vörðuvík? Er vitað um tilgang hennar? Austan við víkina er Þuríðarvarða.“
Helga S. Melsteð, sem ólst upp í Vatnskoti, segir svo í örnefnaskrá Vatnskots frá 1982:
„Austan við Veiðitanga er Vörðuvík (39). Þar fyrir ofan (nálægt vatninu) var varða. Helga veit ekki, hvort hún stendur ennþá. E.t.v. hefur hún merkt miðin við víkina.“
„Öfugsnáði heitir þarna fyrir austan. Hann er langur tangi í Skógarkotslandi austan Vörðuvíkur. Vörðuvík og Öfugsnáðavík mætast; ekkert skilur þær að, en Öfugsnáði, tanginn, myndar Öfugsnáðavíkina. [...] Þarna eru góðar lagnir, svo og við Vörðuvík.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Vörðuvík inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.