Stórkonugil
Stórkonugil er stórt gil í austanverðu Ármannsfelli. Það er myndað af leysingavatni og nær frá gígbarmi fellsins alla leið niður að fjallsrótunum. Framburður úr gilinu hefur átt drjúgan þátt í að mynda Hofmannaflöt, austan og norðaustan gilsins, sem og Víðivelli nokkuð sunnar. Örnefnið Vopnalág hefur verið merkt norðan í gilsmynninu og sunnan þess má finna örnefnið Sláttubrekku.
Engar sögur fylgja stórkonunni, þ.e.a.s. tröllskessunni, sem gilið mun vera kennt við.
Stórkonugil í frumheimildum
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1985:
„Stórkonugil (5) er í vestur frá Hofmannaflöt, djúpt og dimmt, sker fjallið upp á brún. Framar og vestar kemur brekka sem kölluð var Sláttubrekka (6).“
Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:
„Suðaustan í Ármannsfelli er Stórkonugil (22). Austan undir fjallinu er Hofmannaflöt (23).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Stórkonugil inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.