Sláttubrekka

Google Maps
Ornefni Atlas Slattubrekka B0c2

Sláttubrekka

Sláttubrekka er gras- og kjarrgróin brekka í suðaustanverðum rótum Ármannsfells. Hún er upp við Uxahryggjaveg, skammt sunnan Stórkonugils og Hofmannaflatar og norðan við Víðivelli. Brekkan var meðal annars slægjublettur frá Hrauntúni.

Önnur svipuð örnefni, Sláttubrekkur, má finna í landi Svartagils og vestan í Hríshöfðum.

Sláttubrekka í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Austur úr Ármannsfelli gengur lág öxl með grasbrekku sunnan-í, sem heitir Sláttubrekka (98) og er þjett við veginn inn á Hofmannaflöt (99). Litlu fyrir sunnan Sláttubrekku eru sandflatir, sem ganga niður í hraunið, dálítið vaxnar skógi og eru auðsjáanlega myndaðar af vatnsrensli úr fjallinu. Þær heita Víðivellir (100).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

43. Var Sláttubrekka slegin? Hvaðan? En Víðivellir? Frá Hrauntúni.“

Kristján segir þá í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Stórkonugil (5) er í vestur frá Hofmannaflöt, djúpt og dimmt, sker fjallið upp á brún. Framar og vestar kemur brekka sem kölluð var Sláttubrekka (6).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Sláttubrekku inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni