Hellir er skúti á litlum nesodda vestan Arnarfells, upp við bakka Þingvallavatns. Vatnið fellur inn í Helli og er hann óaðgengilegur fótgangandi.
Víkur með sandfjörum eru hvor sínu megin við nesoddann og kallast Syðri- og Innri-Sandskörð.
Hellir í frumheimildum
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá Arnarfells frá 1982:
„Bergstallur fjallsins að norðvestan er hár, víða 15-20 m á hæð, beint niður í vatn. Þar sem hann endar að norðaustan er klettadrangur úti í vatninu, sem heitir Karl (19). Austan við hann eru tvær víkur, Syðri-Sandskörð (20) og Innri-Sandskörð (21). Þær eru greinilegar og slakkar upp af þeim. Milli þeirra er bergstallur eða skúti, sem fellur inn í, sem heitir Hellir (22).“