Jórunnarvarða

Google Maps
Ornefni Atlas Jorunnarvarda 6Ec5

Jórunnarvarða

Jórunnarvarða er varða á Nesi fyrir vestan Vatnsvik. Varðan er sögð hafa verið reist til minningar um konu sem hét Jórunn og varð úti á þessum slóðum árið 1884. Hún var að sögn búsett í Skálabrekku í Þingvallasveit.

Nákvæm staðsetning Jórunnarvörðu liggur ekki fyrir, en örnefnið er nú merkt ofan á lágum hól tæpum 100 metrum norðan við Nautatanga.

Jórunnarvarða í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Fyrir austan [Grunnhóla] eru Nautatangar (102). Grunnhólar eru talsvert hærri en hraunið þar í kring, sem er að mestu lágt og flatt. Upp-undan Nautatöngum er Jórunnarvarða; þar varð úti 1884 kona frá Skálabrekku, er Jórunn hjet.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Jórunnarvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni

  1. Nes