Möngudalur
Möngudalur er laut í austanverðu túninu í Skógarkoti. Hún er hringlaga, um tuttugu metrar í þvermál og um tveggja metra djúp. Í botni hennar safnaðist vatn oft að vetri til.
Möngudalur í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Í túninu suðaustur-af [Skógarkotsbænum] er djúp laut, er Möngudalur (138) heitir.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„57. Er vitað um tilefni nafnanna Möngudalur? Möngudalur er eldra nafn en við höfum hugmynd um. Hann er alldjúpur en vel gróinn og var oft vatn í honum að vetri til, notað handa fénaði.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Möngudal inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.