Nyrðri-Klukkuhóll

Google Maps
Ornefni Atlas Nyrdri Klukkuholl 8796

Nyrðri-Klukkuhóll

Nyrðri-Klukkuhóll er annar af tveimur Klukkuhólum í brekkunni fyrir neðan Hábrún. Milli hans og Syðri-Klukkuhóls liggur svokölluð Klukkustígsleið frá Skógarkoti og Þórhallastöðum suðaustur að Klukkustíg á HrafnagjáHólarnir hafa verið mikilvæg kennileiti á leiðinni.

Önnur greinileg (en óstikuð) gata tvístrast frá leiðinni við Nyrðri-Klukkuhól og liggur til austurs í gegnum Viðarklettsskóg inn að Sigurðarseli. Skammt neðan og vestan Nyrðri-Klukkuhóls er Stekkjarvarða.

Annað sambærilegt örnefni, Klukkuhóll, er að finna norðan við Þingvallakirkju.

Nyrðri-Klukkuhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Suður frá [Nýja-Þingvallahelli] er brekka með vörðubroti; heitir Skúti (37). Þar norður-frá, vestan í hallanum, eru Klukkuhólar (38); þeir eru tveir stórir grjóthólar með lautum og skógi; standa þeir andspænis hvor öðrum, með slakka á milli. Norður frá þeim, einnig vestan í hallanum, er Viðarklettsskógur (39), með kletti þeim, er skógurinn ber nafn af, norðast og austast sunnan-undir svonefndum Höfðum (40) [...]“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

19. Er vitað um tilefni nafnsins Klukkuhólar? Klukkuhólar hafa á milli sín leifar af gömlum götum, sem lágu óljóst á köflum, frá Þingvöllum yfir Hábrún að Klukkustíg og þaðan suðaustur um sveitir.“

Búið er að handskrifa viðbót við svarið aftan á einu blaðinu í skránni:

Fyrsta leiðin sem lá frá Þingvöllum, lá um efri Velli yfir Háugjá á Sandhólana framhjá Þórhallastöðum, á milli Klukkuhóla og Klukkustíg yfir Hrafnagjá fyrsta færa leiðin til austur sveita.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Nyrðri-Klukkuhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni