Stekkjarvarða

Google Maps
Ornefni Atlas Stekkjarvarda 8Dfd

Stekkjarvarða

Stekkjarvarða (eða Stórastekkjarvarða) er varða á hól við norðurenda Lágubrúnar, um 250 metrum fyrir neðan Nyrðri-Klukkuhól. Norðvestan við Stekkjarvörðu eru lágir hólar sem nefnast Stekkjarvörðubalar.

Varðan er kennd við Gamla-Stekk frá Skógarkoti, sem reistur var við eyðibýlið Þórhallastaði skammt vestar. Hún er enn heilleg og sést glöggt frá Þingvallavegi.

Stekkjarvarða í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Skammt norður frá Tjörnum liggur vegurinn yfir bratta klapparhæð; heitir hún Melur (116). Þaðan gengur lægð til norðausturs, vestan-undir Brúnar-hallanum. Það heitir Lágbrún (117); nær hún allt að stórum grjóthól, sem lokar fyrir norðurenda hennar. Á hól þessum er varða, sem heitir Stórastekkjarvarða (118), og er hún beint niður frá áðurnefndum Nyrðri-Klukkuhól (119). Þaðan eru óreglulegir hólar og balar til norðvesturs heim undir Gamla-stekk (120); heita þeir Stekkjarvörðubalar (121).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

9. Hvar og hvernig er Hábrún? Hábrún hvers? En Lágbrún? Hábrún er svæði sem liggur frá Svínhólum, í suðvestur, hefur sömu stefnu og Hrafnagjá, allbreið spilda, vel viði vaxin og grösug. Hún nær vestur fyrir gamla Þingvallahelli og taka þar við hallar, viði vaxnir niður að vatninu. Norður af Hábrún miðri eru 2 strýtumyndaðir hólar sem heita Klukkuhólar. Niður af nyrðri hólnum er annar lágur hóll, með velhlaðna vörðu, sem er kölluð Stekkjarvarða, en í vestur frá henni er all þétt skógarbelti, ekki mjög breitt, sem kallað var Lágbrún. Hún nær vestur að Mel, sem er langur klapparbali, austan við gamla Þingvallaveginn, sem liggur að Skógarkoti.

51. Er Stórastekkjarvarða kennd við Gamlastekk? Já.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Stekkjarvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar á öðrum hól 100 metrum suðaustar (64.25768,-21.0463).

Heimildir

Tengd örnefni