Stekkjarvörðubalar

Google Maps
Ornefni Atlas Stekkjarvordubalar 7F3a

Stekkjarvörðubalar

Stekkjarvörðubalar eru smáhólar norðan við Lágubrún. Þeir eru kenndir við Stekkjarvörðu sem stendur á hól skammt austar. Varðan sjálf er kennd við Gamla-Stekk frá Skógarkoti.

Stekkjarvörðubalar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Skammt norður frá Tjörnum liggur vegurinn yfir bratta klapparhæð; heitir hún Melur (116). Þaðan gengur lægð til norðausturs, vestan-undir Brúnar-hallanum. Það heitir Lágbrún (117); nær hún allt að stórum grjóthól, sem lokar fyrir norðurenda hennar. Á hól þessum er varða, sem heitir Stórastekkjarvarða (118), og er hún beint niður frá áðurnefndum Nyrðri-Klukkuhól (119). Þaðan eru óreglulegir hólar og balar til norðvesturs heim undir Gamla-stekk (120); heita þeir Stekkjarvörðubalar (121).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Stekkjarvörðubala inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni